Laugardags Gusumessa kl 12 · Mjúk · nærandi · græðandi eldheit saunugusa![]()
með Guðmundi Emil Verið hjartanlega velkomin á laugardags gusumessu í Oddeyrarbót, þar sem við hægjum á, mýkjum taugakerfið og leyfum líkamanum að endurnærast í hlýju, nærveru og góðri orku.
Þetta er gusa fyrir alla, konur og karla, sem vilja:
• sleppa spennu og álagi vikunnar
• mýkja líkama og huga
• svitna djúpt og hreinsa kerfið
• jarðtengja sig og hlaða sig fyrir nýja viku
Gusan verður mjög heit, en leiðin þangað er mjúk, örugg og nærandi. Engin æsingur – bara róleg leiðsögn, djúp öndun, slökun og kraftur hitans. Á milli lota verður möguleiki á sjósundi fyrir þá sem vilja – kælandi, endurnærandi og jarðtengjandi upplifun sem dýpkar áhrif saununnar. Allt er valfrjálst – þú hlustar á líkamann og velur það sem þjónar þér best. Þetta er stund fyrir þig. Til að vera. Til að anda. Til að koma heim í líkamann.
Laugardagur · hlýja · mýkt · styrkur · tenging
Hlakka til að svitna með ykkur ![]()
12:00-13:30
Gummi Emil